23.apríl 2012 - Administrator - Lestrar 16
Staða laus í hagsmunaráði
Laus er til umsóknar staða hagsmunaráðsfulltrúa í nemendaráði Þórdunu. Að loknum kosningum í síðastliðinni viku,
þar sem aðeins einn fulltrúi náði kjöri í hagsmunaráð, var ljóst að sökum tímaskorts yrði ekki hægt að standa
fyrir öðrum kosningum á þessari önn, sem lög gera ráð fyrir, og því þyrfti sá hagsmunaráðsfulltrúi sem fyrir sat
að sinna stöðunni fram á haust þegar hægt yrði að kjósa. Því miður sáu sitjandi hagsmunaráðsfulltrúar
sér ekki fært að sinna því af persónulegum ástæðum og hefur Samuel Örn Pétursson þegar sagt stöðu sinni lausri en
Guðrún Ösp Erlingsdóttir, réttkjörinn fulltrúi í hagsmunaráði, mun taka sæti Írisar Sveinbjörnsdóttur.
Sú staða er nú komin upp, samkvæmt lögum Þórdunu, að nemendaráði er falið að skipa í stöðuna einn umsækjenda. Umsóknir skulu berast í tölvupósti á hrabba@vma. eða omar@vma.is, þar sem fram skal koma nafn, kennitala, braut og símanúmer. Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 29. apríl.

Jói Óda (Jóhann Freyr Óðinsson Waage) varð í
kvöld í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna. Jói var glæsilegur fulltrúi skólans á allan veg og
Þórduna óskar honum til hamingju með frábæran árangur. Sigurvegari kvöldsins var kór Sjómannaskólahluta Tækniskólans
og í þriðja sæti urðu frændur okkar og nágrannar frá Húsavík.