Þórduna | Nemendafélag VMA
Busaball VMA 2010
ÁRSKORT Í BJARG
Þeir sem skrifuðu undir samning við Bjarg, listinn er á leiðinni til
þeirra og fólk má bara skella sér í ræktina á morgunn 3.maí og kaupa kortið sitt =D
Þökkum fyrir þáttökuna og vonum að þið njótið
sumarsins
F.H Íþróttaráðs Guðný Jónsdóttir
GudnyJons91@gmail.com
Úrslit kosninga 2010
2010-2011
Alls greiddu 464 nemendur atkvæði og atkvæðin féllu þannig:
Formaður
Arnór Ingi Hansen hlaut 73,5 % atkvæða
Pálmi Þorgeir Jóhannsson hlaut 23,3 % atkvæða
Auðir og ógildir seðlar voru 3,2 % atkvæða
Varaformaður
Darri Arnarson hlaut 94 % atkvæða
Auðir og ógildir voru 6 % atkvæða
Gjaldkeri
Jóhann Björgvin Elíasson hlaut 68,5 % atkvæða
Karólína Gústafsdóttir hlaut 25,7 % atkvæða
Auðir og ógildir voru 5,8 % atkvæða
Ritari
Guðný Jónsdóttir hlaut 53,5 % atkvæða
Ugla Stefanía Jónsdóttir hlaut 42,7 % atkvæða
Auðir og ógildir voru 3,9 % atkvæða
Skemmtanastjóri
Kristófer Knutsen hlaut 87,5 % atkvæða
Auðir og ógildir voru 12,5 % atkvæða
Eignastjóri
Grétar Bragi Hallgrímsson hlaut 56,3 % atkvæða
Þorsteinn Marinó Egilsson hlaut 25,9 % atkvæða
Merenía Kristín Hrafnkelsdóttir hlaut 14,2 % atkvæða
Auðir og ógildir voru 3,7 % atkvæða
Hagsmunaráð
Aron Heiðar Steinsson hlaut 71,6 % atkvæða
Ragnar Heiðar Sigtryggsson hlaut 61,2 % atkvæða
Dagný Hulda Valbergsdóttir hlaut 58,8 % atkvæða
Nýtt nemendaráð skipa:
Formaður
Arnór Ingi Hansen
Varaformaður
Darri Arnarson
Gjaldkeri
Jóhann Björgvin Elíasson
Ritari
Guðný Jónsdóttir
Skemmtanastjóri
Kristófer Knutsen
Eignastjóri
Grétar Bragi Hallgrímsson
Hagsmunaráð
Aron Heiðar Steinsson
Ragnar Heiðar Sigtryggsson
Frambjóðendur til kosninga
Frambjóðendur eru í stafrófsröð undir hverju embætti og í sviga má sjá braut viðkomandi frambjóðanda. Kosningar fara fram
fimmtudaginn 15. apríl.
Formaður:
Arnór Ingi Hansen (vélstjórn)
Pálmi Þorgeir Jóhannsson (Rafiðn)
Varaformaður:
Darri Arnarson (Náttúrufr.)
Gjaldkeri:
Jóhann Björgvin Elíasson (Húsasmíði)
Karolína Gústafsdóttir (Viðsk.)
Ritari:
Guðný Jónsdóttir (Náttúrufr.)
Ugla Stefanía Jónsdóttir (Náttúrufr.)
Eignastjóri:
Grétar Bragi Hallgrímsson (Îþr.br.)
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir (Málmiðn)
Þorsteinn Marinó Egilsson (Félagsfr.)
Skemmtanastjóri:
Kristófer Knutsen (Náttúrufr.)
Hagsmunaráð (2 fulltrúar kjörnir):
Aron Heiðar Steinsson (Rafiðn)
Dagný Hulda Valbergsdóttir (Félagsfr.)
Ragnar Heiðar Sigtryggsson (Viðsk.)
Kosningar til stjórnar Þórdunu!
þann 15. apríl nk.
Þórduna auglýsir hér með eftir framboðum í eftirfarandi stöður:
Formaður, Varaformaður, Gjaldkeri, Ritari, Eignastjóri, Skemmtanastjóri og Hagsmunaráð(x2)
Framboðum skal skilað í tölvupósti á netfangið hrabba@vma.is eða omar@vma.is
Í framboði þarf að koma fram nafn, símanúmer, kennitala, staða sem sóst er eftir auk annars sem við
kann að eiga.
Frestur til að skila inn framboði er 26. mars.
Hér fyrir neðan má sjá greinar um kosningar úr lögum Þórdunu.
8. KOSNINGAR
8.1. Kosið er í embætti nemendafélagsins - sem eru eftirfarandi: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari,
skemmtanastjóri, eignastjóri og tveir hagsmunafulltrúar - í almennum kosningum sem skulu haldnar í síðasta lagi mánuði fyrir kennslulok,
þannig að nægur tími gefist fyrir fráfarandi nemendaráð til starfa með nýju nemendaráði.
8.2. Kjörgengi hafa allir Þórdunufélagar sem náð hafa sjálfræðisaldri og geta sínt frá
á hreint sakavottorð sbr. gr. 3.5., kosningarétt hafa allir Þórdunufélagar.
8.3. Til að kosning sé gild skulu að minnsta kosti 30% Þórdunu-félaga greiða atkvæði. Ef ske kynni
að aðeins einn frambjóðandi bjóði sig fram í tiltekið embætti verður hann að hljóta að minnsta kosti 50% greiddra
atkvæða.
8.4. Nemendaráð skipar 5 manna kjörstjórn í upphafi vorannar, í síðasta lagi fimm vikum fyrir
kjördag. Kjörstjórn setur sér starfsreglur og sér um framkvæmd kosninganna.
8.4.1. Samþykki félagsmálafulltrúa þarf fyrir skipan kjörstjórnar.
8.4.2. Meðlimir í kjörstjórn eru ekki kjörgengir í embætti.
8.5. Framboð til nemendaráðs
8.5.1. Kjörstjórn auglýsi eftir framboðum eigi síðar en mánuði fyrir kosningar.
8.5.2. Kjörstjórn skal leitast við að frambjóðendur séu ekki færri en tveir í hvert
embætti.
8.5.3. Þá skal og birta kosningalög opinberlega um leið og auglýst er eftir framboðum.
8.5.4. Frambjóðendur skulu hafa tilkynnt skriflega framboð sitt til kjörstjórnar eigi síðar en 7 dögum fyrir
kjördag, ella telst framboð viðkomandi ógilt.
8.5.5. Sami aðili má ekki bjóða sig fram til eða gegna fleiri en einu embætti í senn innan nemendaráðs
(sjá þó lið 3.4.2).
8.5.6. Þegar framboðsfrestur er útrunninn skal kjörstjórn boða til fundar með öllum frambjóðendum
í síðasta lagi þremur dögum fyrir kosningar. Þar skal frambjóðendum bent á helstu atriði kosningalaga er varða áróður,
kjördag, talningu atkvæða og skipan nýs nemendaráðs.
8.6. Kynning á framboðum
8.6.1. Frambjóðenda er heimilt að kynna framboð sitt, en ber að gæta fyllsta velsæmis. Kjörstjórn,
nemendaráð og félagsmálafulltrúar áskilja sér rétt til að fjarlægja eða taka fyrir áróður sem þykir
misbjóða þeim sem um skólann fara eða sem gengur á svig við lög og reglur skólans og Þórdunu.
8.6.2. Telji kjörstjórn eða félagsmálafulltrúar frambjóðanda af einhverjum orsökum vera
vanhæfan til setu í nemendaráði ber þeim að leggja vantrauststillögu fyrir skólayfirvöld til samþykkis.
8.6.3. Frambjóðendum er óheimilt að nota aðstöðu og efni nemendaráðs til auglýsingagerðar
eða áróðurs.
8.6.4. Nemendaráði er skylt að kynna öll framboð jafnt og skal slíkt gert á upplýsingatjaldi í
Gryfjunni og/eða með framboðsfundi á vegum nemendaráðs á sama stað.
8.6.5. Kosningaáróður á kjördegi er óheimill. Allar auglýsingar skulu fjarlægðar áður en
skóli hefst á kjördag.
8.7. Frambjóðendum, eða fulltrúum þeirra, er heimilt að vera við talningu atkvæða í
samráði við kjörstjórn.
8.8. Nýtt nemendaráð skal hefja störf strax að kosningu lokinni og starfa í samvinnu við eldra
nemendaráð til vors. Ákvarðanataka skal falin í hendur nýrri stjórn en eldri stjórn hafi atkvæðisrétt á
nemendaráðsfundum fram að kennslulokum.
8.9. Takist ekki að skipa í öll embætti í nemendaráði í kosningum skal boða til kosninga viku seinna
í viðkomandi embætti.
8.10. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir í kosningum Þórdunu skal hlutkesti látið ráða um hver
nær kosningu.
8.11. Ef auðir seðlar eru hlutfallslega fleiri en greidd atkvæði hæsta frambjóðanda nær hann ekki kjöri.
Skal þá innan vikutíma auglýsa eftir nýjum frambjóðendum og halda í framhaldi af því nýjar kosningar. Ef einhver
frambjóðandi nær enn ekki kjöri skal stjórn nemendaráðs skipa í stöðuna.
8.12. Nemendaráð skal birta niðurstöðu kosninga í Gryfjunni í síðasta lagi á hádegi degi
eftir kosningar og á heimasíðu sinni strax í kjölfarið.
8.13. Brotthvarf ráða og nefnda eða einstakra meðlima.
8.13.1. Láti meðlimur nemendaráðs af störfum fyrir lok kjörtímabils síns, skal auglýsa eftir
framboði og standa fyrir kosningum um viðkomandi embætti innan viku frá brotthvarfi viðkomandi meðlims. Komi ekki framboð í stöðu skal
nemendaráð skipa í stöðuna.
8.13.2. Segi nemendaráð af sér fyrir lok kjörtímabils síns ber því að efna til kosninga
áður en það lætur af störfum. Nemendaráð getur ekki látið af störfum fyrr en nýtt nemendaráð hefur verið
kjörið.