01.desember 2011 - Administrator - Lestrar 70
Í gær fengu tvær stelpur bíómiða í verðlaun fyrir frábærar tillögur að hollu prófsnakki. Það voru þær Sandra Haraldsdóttir og Sædís Karen Stefánsdóttir. Hugmyndir þeirra voru niðurskornir bananar og vínber og ristaðar hnetur og möndlur með kanil/negul (eða öðrum kryddum). Nemendafélagið afhenti þeim viðurkenninguna.
Starfsmaður RÚV kom í gær og tók viðtal við Kolbrúnu Baldursdóttur ritara Þórdunu og stelpurnar sem fengu verðlaunin.
Hægt að hlusta á viðtalið á vef RÚV.




