Í Verði þér að góðu er á sprenghlægilegan hátt fjallað um manninn sem félagsveru. Okkur er boðið til samkvæmis þar sem félagsveran er krufin; við fylgjumst með því hvernig hún kemur fyrir og hvernig hún afhjúpar sig þegar hún er viðkvæm, einmana og hungruð. Félagsveran bregður á leik, dansar, hreykir sér og þráir gefandi samskipti.
Verði þér að góðu var tilnefnd til þriggja Grímuverðlauna og var boðið til sýninga á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal sem fer fram í Reykjavík í byrjun september.
Leikstjórn: Friðrik Friðriksson og hópurinn
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Leikmynd og búningar: Rósa Hrund Kristjánsdóttir
Leikarar og dansarar: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einarsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir.




