10.nóvember 2011 - Administrator - Lestrar 52

Sjá á Facebook: http://www.facebook.com/event.php?eid=183049238447400
MA og VMA ætla að halda saman metakvöld fimmtudagskvöldið 10. nóvember og byrjar fjörið kl. 19:30.
Á metakvöldi keppa einstaklingar sín á milli og um leið fyrir hönd skólans síns í alls konar þrautum/keppnum.
Sigurvegarinn í hverri keppni fær örlítinn GLAÐNING og nælir sér líka í 1 stig fyrir skólann sinn. Skólinn sem er með
flest stig vinnur heildarkeppnina!
Þannig nú er um að gera að MÆTA og taka þátt eða bara mæta og styðja sinn skóla!!
Þetta verður sprenghlægilegt og ofurskemmtilegt.
FRÍTT inn.
Listi yfir keppnir:
-Hver kemst í flesta boli
-Hróskeppni - hrósa andstæðingnum
-Kókómjólkurþamb
-Botna vísur
-Röng spurningarkeppni - ef svar er já, segja nei og öfugt
-Skyrmötun
-Hver getur troðið flestum vínberjum uppí sig
-Kókosbolluát
-SMS-keppni
-Gamla góða "egg á skeið" kapphlaupið
-Köfun
-Teygjukeppni í andliti - teygja á enninu og koma henni niður andlitið.
-Tissjúkeppni - hver er fljótastur að tæma tissjúbox
-Labba yfir kornflexbraut
Það er engin fyrirfram skráning í keppnirnar, þannig ef þig langar að taka þátt
í einhverri þrautinni, þá skaltu bara vera fljót/ur upp á svið, fyrstur kemur fyrstur fær! ATH, það þurfa að vera jafnmargir
keppendur úr hvorum skóla í hverri þraut :)
Be there and be the best! :D




